Húsreglur eru hérna
Húsvörður
Húsvörður sér um allt viðhald fyrir okkur, allar viðgerðarbeiðnir og ábendingar ættu að fara á umsjon@husvaktin.is. Húsvörðurinn á að vera hérna á hverjum miðvikudegi í tvo tíma í hvert skipti.
Ef neiðarástand kemur upp þá er hægt að hringja í 547-6088 milli 8-17 á virkum dögum. Um kvöld og helgar er hægt að hringja í neiðarnúmer 537-6019. Það kostar 15 þúsund krónur bara að hringja í neiðarnúmerið, svo verið viss að þetta geti ekki beðið til morguns áður en þið notið neiðarnúmerið. Ef að neiðar ástandið er í ibúðinni ykkar þá notið sama númerið og kostnaðurinn mun vera skuldfærður á ykkur.
Ef þér vantar hjálp við eitthvað viðhald í íbúðinni þinni þá getur húsvörður hjálpað þér með það fyrir 10þ á klukkustund, rukkað á 15 min fresti.
Ef þú þarft að fá hurðaopnarann þinn stilltann inná kerfið okkar þá getur húsvörðurinn hjálpað með það. Hann getur líka selt þér nýjan opnara tilbúinn í notkun.
Bílahurð
Bílakjallarahurðin er í viðhaldi hjá Lokaval ehf lokaval@lokaval.is 898 3230
Fjarstýringar þurfa að vera tousek tegund, engar aðrar fjarstýringar mun virka hjá okkur. Það er hægt að kaupa nýjar fjarstýringar frá Lykillausnir sem eru í eigu Vélar og Verkfæri https://lykillausnir.is/ eða frá húsverðinum eins og kemur fram að ofan.
Hér eru leiðbeiningar til að forrita nýjar fjarstýringar.
Annað
Hleðslustöðvar eru frá Ísorku, hafðu samband við þá ef þú villt setja upp hleðslustöð í stæðinu þínu.
Ef þú kemst ekki á húsfund og vilt sendi eitthvern í þinn stað þá getur þú fyllt út þetta eyðublað og sent það með staðgengli þínum.
K. Þorsteinsson & Co. sér um að smíða lykla fyrir okkur, 2000 kr stykkið. Þeir eru í Skútuvogi 10 E og síminn þeirra er 416 0800 og tölvupósturinn þeirra er kth@kth.is. Heimasíðan þeirra er http://www.kth.is/. Þú þarft og vera skráður eigandi hjá þjóðskrá til að fá lykill smíðaðan.